670.færsla. Flugfreyjufundur
Ég hlakka ýkt til jólanna.
Fór í saumó í gær. Með sjöttasjé stelpunum. Það var ýkt gaman. Mm og gott að borða. Ræddum heilmikið barneignir þar sem barnastíflan hjá þessum 17 stúlkum virðist loksins vera brostin. Í síðasta saumaklúbbi var ekkert barn komið í hópinn en í gær 3 stykki. Mér segir svo hugur að þetta sé bara byrjunin... *
En mikið fannst mér gaman sko. Ræddum líka brúðkaup. Og háskólanám. Og endajaxlatökur. Og íbúðakaup. Og auðvitað kærasta... sem líkt og börnunum fer ört fjölgandi í þessum hópi. Og skoðuðum nokkrar myndir frá gömlum tímum...
þúst skiluru bar ýkt gaman sko. Ýkt.
* við yfirlestur fannst mér þessi setning hljóma eins og ég væri að gefa það í skyn að ég sjálf væri ólétt. Það er hins vegar víðs fjarri sannleikanum. Ég er bara búin að fitna.
5 ummæli:
Hahah :) já okay... en já ákvað að skrifa nú haha núna þar sem ég gerði það ekki hjá síðustu færslu. Þar hló ég samt líka. :)
haha.
þetta var sniðugt kvöld. leitt að við gerum þetta ekki oftar.
Já, þetta var gaman. Ég samt held að engin af barnlausum í hópnum muni leggja í barneignir alveg á næstunni eftir nánar lýsingar á fæðingum og fylgikvillum.
Það er rétt. Þetta var frekar góð getnaðarvörn. Reyndar vógu myndirnar af börnunum aðeins upp á móti þessu.
Skrifa ummæli