690.færsla. Boggverðlaunin 2007 III
Ó minn almáttugur! Nú er sko komið að þriðja hluta kepninnar og nú fáið þið sko að sjá hærri tölur en hafa áður þekkst í þessari keppni.
Flokkur dagsins er FRÆNKUR
Þessi flokkur er í miklu uppáhaldi hjá mér af tveimur ástæðum: a) það er svo gaman að fylgjast með frænkum sínum og b) í þessum fámenna hópi eru sumir af duglegustu bloggurum listans.
En vindum okkur bara beint í úrslitin. Aðeins fimm þáttakendur eru í flokknum svo ansi stórt hlutfall þeirra kemst á verðlaunapall.
Ííí ... duddururdururudu ... þriðja sæti ... með 64 færslur... er stóra frænka mín hún Brynja Á E
Gefum henni gott klapp. Hún er engin nýgræðingur í greininni en lætur ekki deigan síga og gefur nýliðunum ekkert eftir.
Þá er komið að öðru sætinu .... og þá erum við að tala um tölur í gæða flokki... hvorki meira né minna en 134 færslur á árinu ... engin önnur en litla frænka mín hún Nanna C.
Klöppum fyrir henni. Hún er einnig yngsti þáttakandinn.
Fjúff. Þetta er svo spennandi! Haldið ykkur fast ... í fyrst sæti ... með hreint ótrúlegan árangur ... er engin önnur en mamma keppandans í 2. sæti Fríða frænka! Með hvorki meira né minna en 296 færslur á árinu. Svakaleg frammistaða. Vá.
Önnur úrslit:
4. sæti: Fast á hæla systur sinnar er Lora með 53 færslur.
5. sæti: Þorbjörg með 22 færslur.
Jæja, þetta var spennandi. Tveir þáttakendur yfir 100 færslu markið og einn með nálægt 300 stig. Mæðgur og systur að keppa.
En þess ber að geta að þessi flokkur mun fljótlega taka nokkrum breytingum þar sem einhverjar frænkur hafa verið skildar eftir úti í kuldanum. Hyggst bloggarin fljótlega bæta úr þessu. Einnig er stórt spursmál hvort hleypa skuli karlmönnum inn í þennan flokk eða halda þessu í kvennaflokki. Við sjáum til.
16 ummæli:
Vááá´! Ég þarf greinilega að taka mig á, öss ég sem hélt ég myndi toppa allavega Brynju! En að Fríða hafi 296 færslur á árinu.. Váááá! ..hvað ert þú með margar Hlíf mín?
Í augnablikinu er ég með 95.
Já sko á ég að segja ykkur. Hún er líka alltaf í tölvunni hihi :P
Ég taldi færslurnar mínar í gær, ef þú skyldir nú telja vitlaust hehe :D
Vá hvað það er langt síðan ég hef verið kölluð Nanna C. Í DK fyrir 6 árum eða eitthvað. Nanna C se! ha haa...
jájá stúlkur mínar þið náið aldrei með tærnar þangað sem ég er með hælana. neinei
nú, og kannski ég komi því þá á framfæri hér að ef fólk langar til að hafa aðgang að súperleyndó blogginu mínu sem er enn í fullu fjöri, sendið mér þá tölvupóst á fridakjartans@gmail.com og ég bæti því netfangi sem ég fæ póstinn frá á listann yfir leyfilega lesendur, ja nema fólk taki annað fram.
Vá, en skemmtilegt. Ég hélt að ég hefði verið enn lélegri en þetta, en þetta er samt lélegt. Þarf greinilega að fara að fara aftur til útlanda.
Takk fyrir verðlaunin Hlíf :)
Ha, fékk Brynja verðlaun??
Ja, bara heiðurinn í verðlaun sko. Verðlaun hafa ekki verið ákveðin ennþá hehe. Veit ekki alveg hvernig ég á að koma þeim til skila út um allt land.
Bíðiði bara bráðum kem ég.
Er að bætast við keppandi?
Nanna: Já það er ekkert slæmt að keppendur telji líka ... ég er sko með sjálfgreinda talnablindu.
Ég hélt sko fyrst að þú hétir Nanna A C en fletti því upp í þjóðskrá og þá stóð bara Nanna C
Hvað eru boggverðlaun? ;)
PS Líðanin er skelfileg, kannski að hoppsessionið með Hákoni á Barnum í gærkvöldi hafi ekki verið málið.
Ég hét líka A í Danmörku. En ekki hér. Finnst það líka ekki flott.
:)
Eitt af því sem ég ætla að gera þegar ég verð stór er að fara að blogga. Málið er bara að ég hef ekki hugmynd um hvernig best er að byrja. Hvar er þægilegast að vera? Er til bloggumhverfi á Íslensku? Hver er kostnaður? o.s.frv.
u. Maður getur t.d. farið á blogspot.com og þar er hægt að búa til nýtt blogg... frekar einfalt. Kostar ekkert. Mér finnst þetta fínt, og kostar ekkert, en sumir fíla ekki blogspot. Þá er hægt að vera í wordpress. Það er til slatti af einhverju íslensku líka... blog.is blog.central.is o.fl.
Og svo er til bloggar.is. Mér finnst það fínt og það kostar ekkert.
Já eða þið getið allar fengið ykkur nafn.skrifar.net ..þá eru engar auglýsingar og enginn kostnaður!
Skrifa ummæli