fimmtudagur, október 25, 2007

692.færsla. Bloggverðlaunin 2007 V

Jæja. Að áeggjan Siggu G heldur hér keppnin áfram. Síðasti flokkurinn hefur mátt bíða lengi. Fyrst vegna þess að ég var ekki heima hjá mér um helgina. Síðan vegna almenns dugleysis.

En þá er ekkert eftir en að kynna úrslit í síðasta flokknum sem heitir því óspennandi nafni Og hinir. Það á ekkert að vera móðgandi ... þetta fólk á bara ekkert sameiginlegt ... nema að þekkja mig ... mismunandi mikið. Sjáið hvað ég er orðin klár í þrípunkti. Búin að læra að þeir eiga að vera þrír og bara þrír og bil bæði fyrir og eftir. Þetta er eitt af fjölmörgu sem ég hef lært á því að halda íslenskunámskeið í einum af bönkunum.

En já. Hérna voru nokkuð skemmtileg úrslit. Aðeins fimm þátttakendur (vá mér tókst að muna þrjú t) tóku þátt (ógeðslega pirrandi að vera íslenskufræðingur og muna aldrei eftir því að skrifa þrjú t í þáttakendur). En sum sé (einu sinni skrifaði ég óvart „sum sé“ í ritgerð á meistarastigi í háskólanum. ekki kúl.) aðeins fimm þátttakendur tóku þátt.

Duddurrurururu
Í þriðja sæti með 53 stig er, ómægad ógeðslega töff, Silja. Sem er ný á þessum lista. Hún ætti nú líklega frekar heima í flokknum Las chicas ... en anywho. Ógeðslega töff árangur hjá henni, ómægad skiluru.

Í öðru sæti með 83 stig er æskuvinkona mín og kærastinn hennar: Ragnheiður Ó J. Ógeðslega pirrandi að þurfa að gefa verðlaun til fólks sem er hætt að blogga! Þar að auki er þetta næstum því hópblogg, þ.e.a.s tvímennt. En samt, glæsilegur árangur!

Þá er komið að fyrsta sætinu ... og þar erum við að tala um askoti háa tölu ... Í fyrsta sæti eeeer Hallur Par! Með 144 stig ef ég reiknaði rétt. Aldeilis glæsilegur árangur. Til hammara! Klapp klapp.

Önnur úrslit:
4. sæti: Carlos 6 færslur. Lélegt
5. sæti: Elías P F 1 færsla. Hörmuleg frammistaða


Nú verða AÐALÚRSLITIN KYNNT!
Nú verður litið á þá fjóra sem hafa bloggað fleiri en 100 færslur og litið á úrslitin eins og þau standa í dag.

Jæja, ef ég tel ekki vitlaust þá eru úrslitin yfir allt svona:

4. sæti: Nanna ! með 138 færslur
3. sæti: Hallur ! með 144 færslur
2. sæti: Auður ! með 198 færslur

og loks
1. sæti: Fríða ! með 303 færslur!

Verðlaun verða afhent síðar.
Jæja, fannst ykkur þetta ekki ljómandi skemmtilegt og spennandi? Það fannst mér.

p.s. ótrúlega gott þar sem bloggin telja sjálf færslurnar. Ágætt ef þær eru taldar fyrir hvern mánuð, en best ef allt árið er líka talið saman.

yfir og út.

Jahá.

3 ummæli:

Fríða sagði...

Takk takk.

Og nú er við hæfi að koma með þakkarræðu í anda hollívúdd. Fyrst af öllu vil ég þakka foreldrum mínum fyrir að hafa arfleitt mig að ólæknandi skriftarræpu ... og að lokum vil ég þakka Regnhlífinni minni fyrir að halda svona keppni þar sem ég á séns.

Af tillitssemi við lesendur hefur þessi ræða verið stytt duglega og nær allt meginmálið verið fellt niður því einhverntíma ákvað ég að taka mig á og hætta að láta ritræpuna bitna á kommentakerfum saklausra.

hahahaha :) :) :) ég vann!!! Jibbí!

Regnhlif sagði...

hehe

Nafnlaus sagði...

Mér finnst allavega mjög sniðugt að hafa 4. sætið líka með! :)