þriðjudagur, nóvember 20, 2007

701. færsla. Í það minnsta kert'og spil

Ég er fjársvelt kona. Mjög fjársvelt kona. Af þeim sökum svitna ég og kólna á víxl þegar ég hugsa um jólagjafir. Það er nefninlega svo miklu auðveldara að kaupa gjafir ef maður á svolítinn pening. Núna er ég búin að vera að reyna að láta mér detta í hug sniðugar en hófsamar gjafir án nokkurs árangurs. Því leita ég hérmeð til blogglesenda um hugmyndir.

Hér fylgir listi þeirra sem ég kaupi gjafir handa prívat og persónulega (það eru nefninlega nokkrar gjafir í viðbót sem ég vanalega fæ að borga í og skrifa nafnið mitt á þó ég kaupi þær ekki). Raðað í aldursröð:

Móðir. 66 ára. (Hún kemur vonandi samt með hugmynd sjálf)
Faðir. 54 ára. (Móðir kemur sennilega með hugmynd)
Bróðir. 45 ára
Bróðir. 44 ára
Mágkona. 40 ára
Mágkona. 38 ára
Bróðir. 34 ára
Mágur. 34 ára
Systir. 33 ára
Frænka. 26 ára
Vinkona. 26 ára
Vinkona. 26 ára
Vinkona. 26 ára
Vinkona. 26 ára (fyrir pakkaleik, ódýrt)
Kærasti. 25 ára
Bróðursonur. 15 ára
Bróðursonur. 12 ára
Bróðurdóttir. 9 ára
Bróðurdóttir. 7 ára
Bróðursonur. 5 ára
Systurdóttir. 2 ára

Möguleiki er að grúppa saman í tvö pör bræður og mágkonur og jafnvel einnig systur og mág.
Vona að ég sé ekki að gleyma einhverjum.

Nánustu fjölskyldumeðlimir virast ekki vera ákafir lesendur bloggsins, svo ykkur er óhætt að koma með hugmyndir í kommentum.
Vinkonur og kærasti og frænka hins vegar lesa bloggið a.m.k. af og til og því væri betra að koma með hugmyndir í pósti (lakkgris hjá hotmail.com). Þið megið líka koma með hugmyndir fyrir ykkur sjálf ef þið eruð á listanum!:)

Með von um góð viðbrögð,
Regnhlíf

14 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég og Hrund erum snillingar í að finna ódýrar gjafir. Veit ekki hvernig við höfðum þetta af fyrstu jólin okkar saman eins blankar og við vorum. Það væri nátla best ef þú gætir málað. Hrund reddar okkur oft með málverkum, strigi og litir fást í t.d. Tiger og Sösterne Grene og er hræódýrt.

Þú getur líka bara málað grunn og skrifað eitthvað svo eitthvað skemmtilegt á hann. Ljóð, slagorð, eitthvað um mannekskjuna sem á að fá gjöfina, o.s.frv.

Hummus er mjög ódýrt og einfalt. Ef þú kaupir niðursoðnar (þarft þá ekki að sjóða þær) kjúklingabaunir í heilsuhillunni í Bónus er mjög góð uppskrift frá Sollu utan á krukkunni. Setur það svo í krukkur og borða utan um. Bonito.

Líka hægt að gera chillihlaup. Það er ótrúlega gott, einfalt og ódýrt. Á uppskrift að því ef þú vilt.

Svo er Tiger algjör snilld. Keyptum allavega fjórar jólagjafir þar fyrir tveimur árum. Ef þú grúskar má finna margt sniðugt inn á milli og þar er hægt að finna tilvaldar gjafir fyrir hjón/pör.

Barnabækur fyrir lítil kríli þurfa ekki að vera dýrar. Mikið úrval í Office One, t.d. Emmubækur sem eru alltaf klassískar. Svo er alltaf bókamarkaður hjá Græna hirðinum (þar sem World Class var). Þar eru bækurnar lang ódýrastar.

Það eru oft einhver tilboð á barnafötum á þessum tíma. Í Next er t.d. hægt að fá tvenn náttföt/náttkjóla á eitthvað um 2000. Mjög falleg og eitthvað sem bræðradæturnar gætu haft gaman af.

Í bónus er hægt að fá barnamyndir á DVD og aðrar myndir á innan við 900 krónur. Líka nýjar myndir sem eru oftast ódýrari þar en í öðrum búðum.

Mundu Lush. Hægt að púsla saman ódýrri gjöf þar.

Te og kaffi. Fyrir 1500-2000 geturðu fengið fínt t.d. te, box fyrir það og síu. Eða kaffi mánaðarins og fallegt kaffibox.

Ranimosk, fyrir ofan Mál og Menningu er snilld. Ef þú hefur ekki farið þangað skilurðu hvað ég meina um leið og þú stígur inn. Ótrúlega sniðugt dót og margt ódýrt. Við Hrund finnum oft eitthvað fyrir systkini okkar þar en þau eru á aldrinum 12-16, bæði stelpur og strákar.

Framkallaðu myndir hjá Hans Petersen (39 kr. ,minnir mig, myndin ef þú sendir inn pöntun í tölvu (og ert með digital vél). Kostar lítið að stækka og hægt að fá ódýra og flotta ramma í Ikea. Allir ánægðir með svoleiðis göf. Í fyrra gáfum við fjölskyldumyndir á línuna og svo gaf ég vinkonum mínum fyndnar myndir af okkur saman.

Kolaportið! Grúskaðu!

Vonandi var ég eitthvað hjálpleg

Nafnlaus sagði...

Sko, bókamarkaðurinn er ekki hjá Græna hirðinum heldur við hliðina á honum

Nafnlaus sagði...

Kerti og spil er klassískt. Heimatilbúið konfekt alltaf vel séð.

Regnhlif sagði...

Takk! Frábærar hugmyndir:) Ég er strax farin að hugsa um sumt sem gæti verið sniðugt:)

Fríða sagði...

:) bara gera eins og ég, eiga ekki kærasta og senda foreldrana til útlanda um jólin. Á þeirra eigin kostnað. Já og börnin líka. En ég ætla samt að gefa börnunum mínum eitthvað smá. Engum öðrum. Þar sem ég veit að eitt þeirra les þetta ætla ég ekki að segja hvað, en ég er er sko búin að ákveða það. Það kemur að því fyrr eða síðar að þið systkinin getið ekki endalaust haldið áfram að gefa öllum jólagjafir, það er mikill léttir þegar því linnir.

Nafnlaus sagði...

Eitthvað smá? :(
Ehm ég var með einhverjar hugmyndir en man þær ekki núna. Hmm...

Nafnlaus sagði...

Í ár er það HEIMATILBÚIÐ sem er orðið hjá mér. :)
Mér finnst alveg fáránlega gaman að gefa og velja jólagjafir, og einhvern veginn finnst mér það alveg jafn gaman þótt ég eigi engan pening. Þá þarf maður nebblega að sýna hugvitsemi í verki ...
Allt matarkyns er sneddí, finnst mér. Til dæmis er ótrúlega gaman að fá gott kaffi eða te og það er hægt að gera það agalega fínt með slaufu, límmiðum og skreytingum ýmiss konar. Í fyrra keyptum við mamma ógurlega mikið af kaffi og tei hérna í Glasgow og skiptum t.d. tíu poka öskjum niður í tvennt eða þrennt þannig að hver og einn fékk kannski fjóra litla poka. Mjööög sniðugt og líka ódýrt!

Ef maður "sé" vel að sér í eldhúsinu er líka hægt að búa til konfekt eða smákökur og setja í smekklega krús/öskju. Persónulegt og vinsælt!

Svo er líka hægt að brenna e-s konar safndisk og velja sér kannski þema (jól/kósí/tjútt). Þrátt fyrir að ég sé alla jafna fasisti þegar að kemur að höfundarrétti þá finnst mér safndiskar alveg í góðu lagi ...

Öllum finnst gaman að fá súkkulaði. Nema þeim sem finnst súkkulaði vont, en það er líka bara skrítið fólk.

Ótrúlegustu hlutir fyrirfinnast í Tiger; bækur til að skrifa í, kerti, sápur o.sv.frv.

Nú er ég komin í gífurlegan jólafíling, verð ég að segja ... :)

Regnhlif sagði...

Fríða: En mig langar ekkert að hætta að gefa gjafir. Mér finnst þetta alveg rosa gaman sko, þó ég svitni og kólni á víxl. En já, við hljótum að þurfa að takmarka þetta einhvern tímann ... stór fjölskylda. En ég ætla sko aldrei að hætta að gefa sumum gjafir. Það er svo gaman að gefa gjafir, og fá þær!

Salka: Já, mér finnst heimatilbúið oft rosaskemmtó. Ég veit ekki hvort þú áttaðir þig á því að þú ert "frænka. 26 ára" og ég var einmitt komin með eina góða heimatilbúna hugmynd. Er bara ekki alveg viss hvort hún virkar. Þú mátt sumsé búast við heimatilbúnu frá mér:) Kannski er fáránlegt að við höldum áfram að gefa hvor annarri gjafir... orðnar þetta gamlar, en mig langar ekki að hætta því, mér finnst það mjög gaman, og svo eyðum við held ég yfirleitt engum stórvægilegum pening í þetta. Þannig að, nema þú biðjir mig um að hætta þessu, þá færð þú áfram litla jólagjöf frá mér:)

Regnhlif sagði...

Já og góðar hugmyndir hjá þér líka.

Ég hef oft keypt gjafir eða hluta af gjöfum í tiger, eða söstrene grene. Sumt sem fæst þar er bara mjög fínt, þó sumt sé algjört drasl. Og svo eru líka margir svona sniðugir hlutir þar:)

Nafnlaus sagði...

Mér finnst að við eigum aldrei að hætta þessu - þegar við erum orðnar "frýr" þá svissum við þessu bara yfir á börnin og þá verður það gjöfin frá Sölku fjölskyldu og gjöfin frá Hlífsu fjölskyldu ... gott plott, eh? ;)

Regnhlif sagði...

já. Samþykkt:) hehe:)

Nafnlaus sagði...

Sa i gellu i sjonvarpinu merkja handklædi med ek fatamalningu, hun skar ut i glæru og lagdi yfir handklædid og maladi i gatid. Odyr handklædi eda tvottapokar i Rumfo. Hun gerdi svona upphafsstafi, en orugglega hægt ad gera myndir lika.

Nafnlaus sagði...

By the way ta kemur allt komment dotid a norsku hja mer ekki ensku svo i stadinn fyrir reghlif said ta stendur regnhlif sa og mer finnst tetta oedlilega fyndid

Regnhlif sagði...

híhí:)
Takk fyrir hugmynd:)