miðvikudagur, desember 12, 2007

710.færsla. jólahvað?

Ég er alveg að springa úr jólatilhlökkun. Ég gæti auðveldlega fyllt alla daga með jólastússeríi. Ef ég mætti ráða þá væri ég að því alla daga. En maður er nú námsmaður og desember er víst versti tíminn til að slugsa. Þannig að ég reyni að þolmyndast allan daginn og jólast svo á kvöldin. Ég held ég sé bara í góðum málum. Á bara eftir að kaupa 8 jólagjafir, held ég. Og velja gleraugu handa sjálfri mér. Og kannski einhverja flík svo ég fari nú ekki í jólaköttinn.

Ég held að allir sem þekkja mig viti að ég er algjört jólabarn. Elska allt í sambandi við jólin. Mér finnst gaman að föndra jóladót, kaupa jólagjafir, pakka þeim inn (uppáhaldið mitt), fægja silfur, búa til músastiga, þurrka af, keyra út pakkana og gera allt sem jólaundirbúningnum fylgir. En ég lít svo á að jólin eigi ekki að halda hátíðleg fyrr en 24 desember, nánar tiltekið eftir klukkan 6. Ég skil ekki af hverju allir á Íslandi, fyrir utan stöku sérvitringa eins og mig, virðast líta á aðventuna sem hátíð! Aðventan er ekki hátíð. Sögnin advento í latínu þýðir að koma nær, nálgast. Ég vil að jólin séu jól, en ekki allur desembermánuður. Þess vegna skreyti ég ekki fyrr en rétt fyrir jól og forðast að borða smákökur, drekka jólaöl, hlusta á jólalög nema í undantekningartilvikum á aðventunni. Allt þetta má gera ef maður er að jólast. Það kveikir líka svo vel upp í tilhlökkuninna að fá smá sýnishorn af jólunum. Ég er hins vegar hrædd um að allt þetta verði bara dauðleiðinlegt loksins þegar jólin koma ef maður er búin að vera með þetta allt út allan desember. Mig langar að kunna að meta jólaskreytingarnar, smákökurnar og allt það á jólunum. Ég vil ekki að þetta allt sé orðið hversdagslegt á aðfangadag. Ég elska jólin.

Ég skýli mér á bak við regluna um að maður megi vera leiðinlegur á sínu eigin bloggi, ef manni sýnist svo. Veit að ýmsir eru mér ekki sammála og gætu farið í vont skap við að lesa þessa færslu, og margir hafa þurft að hlusta á þennan söng í mér á hverju ári. Það var náttúrulega ekki meiningin að koma fólki í vont skap ... það er nú ekki jólalegt:) En it´s my blog and I cry if I want to.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Óh var þetta leiðinlegt blogg?
Og núnú, þetta vissi ég ekki. Sko advento. Aha! :)
Já það er svooo gaman að pakka inn gjöfum! Það er nottlega hluti af gjöfinni hvernig hún er pökkuð inn. Eða finnst mér. Þannig að ég skiil ekki af hverju sumir láta afgreiðslufólkið pakka inn fyrir sig. En ég hef nú samt ekkert á móti því að fá að pakka inn í vinnunni :)

Fríða sagði...

jáen, ertu þá ekki að gera ráð fyrir því að fólk fari í vont skap ef það les eitthvað sem það er ekki sammála? Ef ég segi bara hvað mér finnst og hvernig ég geri þetta, þá fyndist mér svolítið leiðinlegt ef aðrir halda að ég sé í leiðinni að ætlast til að aðrir geri eins.

Mér finnst fínt að jólast öðruhvoru í desember og hlusta á jólalög. Mér finnst líka gaman þegar það er fínt hjá mér og af því krakkarnir fara hvort sem er að heiman 20. desember þá ákvað ég að skreyta snemma og hafa fínt bara allan desember til að það færi ekki allt til spillis og enginn nema ég sæi hvað er fínt á jólunum.

Regnhlif sagði...

Oj. Ég bar búin að skrifa langt komment og það hvarf

Regnhlif sagði...

Oj. Ég bar búin að skrifa langt komment og það hvarf

Regnhlif sagði...

og svo kom þetta tvisvar!

Nafnlaus sagði...

Hahah

Regnhlif sagði...

En það sem ég ætlaði að segja var:

Nanna: Algjörlega sammála!

Ég hafði áhyggjur af því að fólki gæti fundist þessi færsla leiðinleg af því að ég er hálfpartinn að hneyklast á fólki sem skreytir snemma, borðar smákökurnar strax og fær sér jólaöl þegar það langar... en ég er samt ekki að hneykslast af því að auðvitað á fólk að hafa þetta eins og það vill! Ekki get ég dæmt siði annarra. Mér finnst bara leiðinlegt, t.d. að útvarpsstöðvar hætti að spila jólalög á milli jóla og nýjars... á jólunum sjálfum... af því að þær eru búnar að vera að spila jólalög allan desember. Æ. Ég hljóma eins og gamall nöldurseggur. En ég ræð ekki við mig.