fimmtudagur, desember 13, 2007

711.færsla. með jólagleði og gjafirnar

Heyrðu. Þetta skotgengur. Á bara tvær gjafir eftir! Ótrúlegur árangur. Hins vegar gengur mér bölvanlega að finna á mig gleraugu. Ef gleraugnaframleiðendur gætu asnast til þess að hafa EKKI eitthvað asnalegt skraut á örmunum þá væri líf mitt mun auðveldara. Svo á ég líka eftir að finna mér flík í jólgjöf frá ma&pa. Er að hugsa um sparilega kápu af því að ég á enga spariyfirhöfn. Dó næstum því úr skömm yfir útganginum á mér þegar ég fór í jarðarför um daginn og þurfti að vera í hálfdruslulegum hversdagsjakka. Og svo þarf ég mj. líklega að finna mér jólaföt, þó ég gæti vel hugsað mér að vera í pilsinu sem ég keypti í fyrra en ég efast um að ég komist í það lengur. Dem itt. Fitusog í pakkann minn!!

Já og svo þarf ég náttúruleg að gera ritgerð. Mér finnst mér bara ganga þokkalega, en það er illur fyrirboði. Yfirleitt fæ ég því hærri einkunn þeim mun verr sem mér gengur.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jáh mér gengur heldur ekkert að finna mér gleraugu. Er samt búin að máta svona triljón. Og ég ætla ekki að fá mér einhver þar sem stendur D&G með huge stöfum eða eitthvað svoleiðis. Jáh, heh

Regnhlif sagði...

Ég skil ekki af hverju þeir geta ekki bara haft venjulega arma.

Nafnlaus sagði...

Mér virðist einboðið að þið farið bara í Tiger frænkur mínar og splæsið þar 200 krónum í gleraugu með venjulegum örmum, losið þá af og teipið við einhver klassagleraugu! Handverkið lengi lifi!!

Regnhlif sagði...

híhí. Góð hugmynd Ella:)

Nafnlaus sagði...

Já þetta er merkilegt, ég fæ alltaf glimrandi einkunnir fyrir ritgerðir sem ég klambra saman kvöldið fyrir skil og er hundóánægð með... Þetta er greinilega eitthvað lögmál!