sunnudagur, desember 16, 2007

712.færsla. út af engu

núna langar mig fjári mikið í klippingu. Ég er mygluð, grá og illa útlítandi. En ég hafði útilokað klippingu í desember sakir fjárskorts (ekki hárskorts) og núna er kannski fullmikil bjartsýni að ég fái tíma. Auk þess sem ég veit ekki hvort það er innistæða á reikningnum mínum. Kannski ég klippi mig bara sjálf á eftir. Eini gallinn er bara sá að ég hef áður prófað það og niðurstaðan varð ekkert sérstök. En það er af nægu að taka, ef ég klippi mig ljótt, þá get ég bara farið í klipp seinna og látið laga það:)

Ji. Núna rétt áðan fann ég fyrir miklum þrýstingi í öxlina, alveg eins og einhver potaði með einum putta í mig. Sem var skrítið því að ég er ein heima.

Ég er mjög ánægð með jólasveinana þessa dagana. Ég er búin að fá tvisvar í skóinn! :) Það er gaman! Gaman gaman gaman!

12 ummæli:

asa sagði...

einu hár-samböndin sem ég á er rán. prufaðu að hringja, og nefndu nafnið mitt. lykilorðið er"rautt". passaðu þig á útsendurunum.

djók
eisið.

Regnhlif sagði...

hahaha

Alma sagði...

Var það nokkuð jólasveinninn sem potaði í öxlina á þér? Ég er einmitt líka búin að fá í skóinn eftir langan tíma án þess að setja skóinn í gluggann, en yfirleitt virðist það samt vera eitthvað úr ísskápnum mínum....

Regnhlif sagði...

hahaha:)
Hver skyldi ástæðan vera, að við háaldraðar konurnar erum allt í einu farnar að fá í skóinn... sem við létum ekki einu sinni út í glugga?

Nafnlaus sagði...

Hey mér finnst ósanngjarfnt að þú fáir í skóinn Hlífa mín en ég fæ ekki neitt:S hmmm hvernig stendur á þessu...

Nafnlaus sagði...

Bíddu mismunar jólasveinninn fólki eftir hjúskaparstöðu? Svindlið.

Nafnlaus sagði...

Já, jólasveinninn er greinilega ekki jafn góður og maður hélt!

Ef það huggar eitthvað þá fékk ég samt bara tvisvar:)

Nafnlaus sagði...

þetta var ég, hlíf, nenni bara ekki að logga mig inn

Nafnlaus sagði...

Sko. Ef þú hamrar nógu oft á einhverju endar fólk á að trúa þér. Ætlarðu virkilega að halda áfram fram að jólum að láta mig lesa að þú sért mygluð grá og illa útlítandi???

Nafnlaus sagði...

Þú ert nú mesta krúttið Hlíf. Skrifar alltaf svo skemmtileg komment hjá mér. Ok, kannski er ég búin að fá mér pííííínu bjór í tilefni prófaloka en þú ert samt voða yndisleg. drr

Annars á ég alltaf eftir að sjá þig fulla.Þú sagðir í sumar að við þyrftum bara að fara á djammið svo ég gæti það. Hvenær?

Nafnlaus sagði...

Vó, ég er fyllri en ég hélt. Í tilefni? Úff, best ég fari að sofa. drr

Regnhlif sagði...

Hahahaha:)