Er asskoti ánægð með þennan fullkomna jólasnjó. Fór í göngutúr áðan, vel búin í regnbuxum og alles. Hoppaði niður bratta brekku rétt við stóra umferðargötu. Fólkið sem átti leið hjá horfði á mig eins og ég væri skrítin. Svo fann ég mér rólu og rólaði mig máttlausa. Mér finnst fátt skemmtilegra en að róla. Svo gekk ég heim aftur og var þá svo heppin að fimm ára strákur sem býr á efri hæðinni var úti að leika. Svo ég gat leikið mér smá með honum. Rennt mér niður brekku, búið til engil og velt mér um í snjónum. Vaya, vaya vamos a la playa hvað þetta var skemmtilegt. Fyrir utan snjóinn sem tókst að troða sér inn á mig í gegnum öll þessi lög af fötum sem ég var í. En það tilheyrir bara. Ekki man ég til þess að maður hafi látið smá kulda á sig fá þegar maður var lítill. Maður fór fyrst inn þegar maður var orðinn svo krókloppinn á fingrunum að maður fór að gráta þegar það komst hiti aftur í þá. Ég ætla aldrei að hætta að leika mér, róla mér og renna mér.
Jólin eru búin að vera sérdeilis hugguleg. Við vorum tilbúin með allt frekar snemma svo aðfangadagur var aldrei þessu vant svo að segja stresslaus. Við héldum samt í gamlar hefðir og komum of seint í messuna, þar sem systir mín, kasólétta húsmóðirin, var ekki jafnsnemma tilbúin og við mamma. Barnið hennar (það fædda, ekki það í bumbunni) sofnaði hins vegar á leiðinni í messuna og steinsvaf yfir henni allri, svo ég hélt á sofandi engli í messunni. Það var bara yndislegt ...
Rjúpurnar brögðuðust stórvel. MMM. ohh.
Og pakkarnir voru æðislegir. Takk fyrir mig! Nú er ég ný kona, með ný gleraugu, í nýjum stígvélum og nýrri kápu. Er sem sagt ekki eins og umrenningur lengur.
Jóladagur var ekki síður skemmtilegur en þá er hefð að öll systkini mín, makar þeirra og börn komi til mömmu. Það er alltaf stuð þegar við 16 komum saman og við höfum gert það að hefð að fara í kúluspilskeppni og ég get með stollti tilkynnt ykkur að ég varð í öðru sæti! Alveg eins og í fyrra og Tómas Orri litli 5 ára frænda varð í fyrsta sæti, alveg eins og í fyrra.
Svo fórum við líka í æsispennandi útsláttarkeppni í alvöru fússballspilinu sem mamma á. Ég komst næstum því upp í aðra umferð, en ég var eitt af þremur stigahæstu tapliðunum og eitt þeirra komst upp í aðra umferð. Svo dönsuðum við í kringum jólatréð við gítarundirleik Adda bróður og lékum okkur að því að syngja sum lögin í djassaðri útgáfu eða rokkútgáfu, fyrir utan náttúrlega að syngja flest lögin í a.m.k. tveimur röddum. Ég elska fjölskylduna mína!!
Svo er dagurinn í dag bara algjört afslappelsi... bara búin að liggja og lesa, horfa á fílamynd í sjónvarpinu og náttúrulega leika mér úti í snjónum. Svona á lífið að vera:)
|
6 ummæli:
úúúúúúú mig langar svo í snjó! ég elska jólasnjó :)
en nei ekkert 10 stiga hiti hjá okkur yfir jólin og svo grenjandi rigning og rok í dag! mig langar svo að fara út að leika með Aliciu, hún myndi fíla það í botn að fá að renna sér á þotu niður stóra brekku eins ég gerði sem barn ... ég er sko súper dúper jelous hérna í VA :(
Gleðileg jól! Og takk fyrir jólakortið (ég sendi engin í ár).
Gettu hvar ég svaf í nótt! :P
Æj yndislega jólafærsla og líka yndislega jólakort, taaaakk :) Verðum að hittast fleiri frænkuhittinga á komandi ári! KV. Lora
hey, það verður ættarmót einhverntíma í sumar stelpur mínar.
Gleðilegt ár Hlíf :)
Hvar ertu eiginlega með allan þennan snjó?? Pant þú setja mig í frænku hópinn þinn. Bestu nýárskveðjur til þín og þinna.
blog.center.is/tumsa
Skrifa ummæli