mánudagur, desember 24, 2007

714. færsla.

Mjög þreytt en ánægð Regnhlíf sendir lesendum öllum hugheilar jóla og nýjárskveðjur.

Regnhlífin er á þessari stundu ákaflega væmin í huga og langar hana bara að knúsa allan heiminn... og vola smá, af því að slíkri væmni fylgir ávallt mikill straumur tára. Ég ætla samt að reyna að halda aftur af tárunum því fólk í kringum mann skilur oft ekki að maður er bara væminn... og með ofvirka tárakirtla.

En gleðileg jól. Rúsínubollurnar mínar til sjávar og sveita, hvort sem ég þekki ykkur eða ekki (held enn í vonina um leynda aðdáendur).

Ég hlakka til að borða rjúpur. Borða laufabrauð. Borða konfekt. Drekka malt og appelsín. Og kók og appelsín í litlum glerflöskum. Og lesa bækurnar sem ég vona að leynist í einhverjum pökkum. Sofa. Slappa af. Vera í faðmi fjölskyldu og vina. Vantar bara einn faðm sem þarf endilega að vera í Keflavík!!

Gleðileg jól.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðileg jól elskan mín;D hafðu það rosa gott og heyrumst svo í jólafríinu:D
Stórt knús, Sólveig Helga!

Nafnlaus sagði...

Gleðileg jól!

asa sagði...

gleðileg jól :) kv,ásan