718.færsla. húsnæði
Vantar einhvern ódýrt og gott húsnæði?
Ég ætla sem sagt að hætta að leigja litlu kjallaraholuna mína og mig langaði til þess að benda fólki á að þarna er laust herbergi núna. Herbergið er vissulega lítið eins og hefur oft komið fram á þessu bloggi:) en þetta er samt frábær staður til þess að leigja á. Kostirnir eru þessir: FRÁBÆR staðsetning fyrir ungt fólk. Mjög mjög stutt frá bænum og ennþá styttra í háskólann. Góðar strætósamgöngur. Eðal meðleigjandi (Auður) og frábærir leigusalar. Og ÓDÝR leiga á þessum síðustu og verstu tímum. Sem sagt: lítið herbergi með aðgangi að eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi (með þvottavél og nokkuð góðu þurrkplássi).
Ég er nú aðallega að auglýsa þetta svona vegna þess að mér hefur fundist svo frábært að búa þarna og vildi því gjarna að einhver sem ég þekki gæti nýtt sér þetta. En þar að auki eru leigusalarnir svo ánægðir með okkur Auði að þeir myndu gjarnan vilja fá einhvern sem við þekkjum og treystum:) Þannig að... ef einhvern vantar húsnæði eða þekkir einhvern góðan sem vantar.... endilega hafið samband við mig:)
Auglýsingu lokið.
Fyndið, í síðustu færslu gleymdi ég að skrifa númer færslunnar. ótrúlegt eftir allan þennan tíma
9 ummæli:
hvað kemur til að þú ert að flytja?
ætla að flytja inn til kærastans, til að spara pening, þar sem ég er hvort eð er alltaf hjá honum:)
úúúú til hamingju með það :)
Núverandi semsagt??
já, núverandi í dag.
Hahaha, flytur inn til NÚVERANDI kærastans til að SPARA PENING :) Hvað þarf hann Einar okkar að þola í næstu færslu? DJÓK - eins gott að velgja litla, góða hjálparanum mínum ekki undir uggum.....æ, svo sæt færsla í gær :) Hmm...þú MÁTT auðvitað fá þér í glas...svo lengi sem Einar verður ekki búinn að fá nóg af kommentunum þínum og við getum treyst á hann þegar að þessu kemur og þú verður blindfull:) Tíhíhí :) En annars skuluð þið fá fullt af brennivíni að launum..... Knús frá la gorda - bókstaflega....
Ég hef reyndar óbeit á áfengi og öllu sem því fylgir:)
Núverandi sparnaðarkærasti kemst aldrei í tölvuna til að móðgast því ég einoka hana (þ.e. tölvuna hans).
Þið þurfið því ekki að hafa miklar áhyggjur.
SVIKARI! nei bara grin, eins og thu veist skil eg thetta vel. Eg a samt eftir ad sakna thin all svakalega! eda thu veist thessar thrjar naetur i manudi sem thu varst heima (BTW, tha eru 10 dagar bunir af ferdalaginu minu i dag sem thydir ad eg a 35 daga eftir... hversu kul er thad?!?!?)
Ast og kossar ur solinni
Aubban
Já. Sömuleiðis. It's the end of an era... and I have to live with a BOY. Buhuhu.
Þetta frí þitt er náttúrulega beyond cool sko... andsk.ég öfunda þig.
Vertu dugleg að láta vita af þér svo ég fái ekki áhuggjur!!
Skrifa ummæli