mánudagur, janúar 28, 2008

723.færsla. frá miðvikudagsmorgni til sunnudagskvölds

Síðustu dagar hafa verið viðburðaríkir, svo ekki sé meira sagt. Af þeim sökum hef ég sama og ekkert komist á netið síðan bara á afmælinu mínu. En nú ætla ég að skrifa langa og leiðinlega færslu.

Miðvikudagur:
Afmælisdagurinn minn. Virkilega mj. góður dagur. Kærastinn hafði planað að hafa óvænta morgunveislu (eins og siður er í minni fjölskyldu (þó ekki óvæntar endilega)) og hafði skipulagt hana í þaula, boðið sys og mömmu að koma og diktaði upp afsökun fyrir því að hann þyrfti að fara til Keflavíkur (til að baka kökur). Nema hann var svo sannfærandi þegar hann kom með afsökunina daginn áður að ég varð ægilega móðguð yfir því að hann væri bara eitthvað að fara til Keflavíkur á fyllerí svo hann neyddist til að segja mér réttu ástæðuna svo ég færi ekki í algjöra roknafýlu. Ég skyldi ekki í því hvað honum var skemmt yfir því hvað ég var fúl. Svo veislan var ekki óvænt en engu að síður ákaflega góð. Svo fórum við aðeins í skólann og síðan út að borða. Um kvöldið kíkti síðan hluti fjölskyldunnar í kaffi. Alveg frábær dagur. Takk, allir, fyrir mig og allar kveðjurnar sem ég fékk á blogginu, facebúkkinu, sms-um eða í samtölum.

Fimmtudagur
Þessi dagur er horfinn úr minni mínu með öllu. Skil ekki hvað varð um hann.

Föstudagur
Sys fer upp á spítala. Ég fer og sæki barn á leikskóla og á meðan fæðist litli bróðir barnsins. Við borðum pizzu, leikum okkur, horfum á Shrek o.s.frv. þangað til litli bróðir kom heim í fylgd foreldranna næsta dag, þ.e. á

laugardeginum. Ég þurfti nú aðeins að fá að halda á litla frænda, sem er ósköp sætur og ósköp lítill. Síðan förum við Einar í þorramat til Keflavíkur og eftir það í partý.

Sunnudagur
brunum í bæinn. Tökum til og undirbúum smá veitingar því ég hafði boðið nokkrum vinkonum í síðbúið afmæliskaffi. Þar ræddum við aðeins nám, barneignir, lýs, flatlýs, kláðamaur og blóðsugur og enduðum í hressilegum umræðum um innflytjendur og fréttaflutning af þeim. Mj. skemmtilegt að fá stelpurnar í heimsókn, þ.e. að segja þær sem eru á landinu.

Og þetta er nú það. Ég veit ekki hvort það kom skýrt fram í þessu bloggi, en ég er búin að vera gjörslamlega á þönum síðan á miðvikudaginn og hef lítið annað getað gert en að halda upp á afmæli og fylgjast með litlum börnum. Æ. Þau eru svo sæt.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við nánari umhugsun held ég að það geti verið að fimmtudagurinn hafi horfið í að horfa á spennandi atburði í ráðhúsi Reykjavíkur... og um kvöldið var vinnu-nörda-spilakvöld... hvernig gat ég gleymt því

Nafnlaus sagði...

Huggulegt spjall í kaffiboði.

Valdís sagði...

Já, ég ætlaði einmitt að minna þig á skemmtilega spilakvöldið í óveðrinu í Hafnarfirði! Hvernig gastu gleymt því??? Og þú sem vannst og allt...

Til hamingju með litla frænda annars:)

Regnhlif sagði...

já. við erum engar teprur þegar kemur að umræðuefnum yfir kaffisopa.

Það voru reyndar tveir strákar í kaffiboðinu. Ekki má gleyma þeim.

Regnhlif sagði...

vá Valdís. við vorum bara að skrifa komment á sama tíma. Takk fyrir. og já, skil ekki að ég skyldi gleyma þessu.

Nafnlaus sagði...

Hahahahaha, ég gleymi svo oft hvað ég gerði heilan dag, æðislegt að sjá einhvern blogga um það.. :D

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litla frænda, frænka.
Kveðjur frá stóra frænda og fjölsk. í Danmörku.

asa sagði...

hæ hlíf. ég fór ekki í skólann í dag ég er veik. kemst því baraí feikl. á morgun

Regnhlif sagði...

Takk Óttar:) Kveðjur til fjölskyldunnar í Álaborg.

Ása: greyið mitt... alltaf veik. Förum þegar þér er batnað