741.færsla. Jevla fasist2
Skemmti mér feikivel í leikhúsinu í gær. Mæli alveg með þessu. Þetta var líka frumsýning og væntanlega góður andi í húsinu. Og ekki bara góður andi, fullt af frægu fólki. Og Alma. Hún var þarna af sömu ástæðu og ég. Gael.
Ég er hins vegar verri í dag en í gær heilsulega séð. Nenni ekki að vera veik samt. Af því að aldrei þessu vant var ég farin að finna einhvern innri dugnað og var farin að fara á Hlöðuna og í ræktina ... en nú ligg ég bara uppi í rúmi. Samt ekki akkúrat í augnablikinu. Er að blogga í augnablikinu.
Bless.
4 ummæli:
ég er aftur orðin slöpp. vona þú hafir ekki smitað mig. Þetta er allt Einari að kenna.
omg! Eruði búnar að sjá kommúnuna? Ég ætla SVO að fara að sjá þetta og gael er sko eina ástæðan!
Ég sá það líka daginn eftir ykkur. ógó gaman.
Svo sætur svo sætur...
Skrifa ummæli