þriðjudagur, febrúar 05, 2008

731.færsla. ó mæ lord

Á ég að segja ykkur....
Í gær setti ég inn Salamanca-færslu.... á bolludaginn.
Við Auður fluttum til Salamanca, einmitt á bolludaginn. Og ég gerði þetta án þess að vita það. Ég get hins vegar ekki sagt ykkur hvers vegna ég man að við fórum út á bolludegi.... fyrir 6 árum. Sjetturinn.is hvað það er langt síðan. Ekki furða að mér finnist ég stundum hafa verið ósköp lítil og vitlaus þegar ég var þarna... Ég var ósköp lítil og vitlaus! Æ samt finnst mér svo stutt síðan. Ég trúi bara ekki að maður gæti farið þangað í dag og rekist á sömu djammfélagana, á sömu stöðunum og fyrir 6 árum síðan. Mér fannst það nú nógu ótrúlegt þegar við rákumst á þá þegar ég bjó í Madríd og Aubb og Gebb komu í heimsókn og við fórum til SAla, fyrir 3 árum. Váts. Þrjú ár síðan ég fór til Madrídar. Og nú er Aubban á leið til Sala eftir nokkra daga. Við kíkjum sem sagt til Sala á þriggja ára fresti:)

Salastelpur: Spurning um að við plönum allsherjar endurferð til Sala 2011... þegar við verðum þrítugar (sjitturinn!)? Gætum jafnvel reynt að hafa uppi á gömlum félögum eins og Söru sænsku, Döru, Söndru eða einhverjum fleiri til að plata með.

Við hvern er ég alltaf að tala? Salafélagarnir eru ennþá í Kabúl, Kambódíu eða ekki að lesa bloggið...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eg les bloggid thitt nokkud reglulega a thessu ferdalagi minu. Er btw ekki uti ad djamma thar sem ad a) minn helsti djammfelagi er med magapinu og b) vid verdum sottar klukkan 4:30 i fyrramalid af frabaerlega fyndnum Tuk Tuk bilstjora sem aetlar ad fara med okkur til Angkor Wat ad horfa a solarupprasina. Hversu god byrjun a afmaelisdeginum minum er thad?

Nafnlaus sagði...

Eg les bloggid thitt nokkud reglulega a thessu ferdalagi minu. Er btw ekki uti ad djamma thar sem ad a) minn helsti djammfelagi er med magapinu og b) vid verdum sottar klukkan 4:30 i fyrramalid af frabaerlega fyndnum Tuk Tuk bilstjora sem aetlar ad fara med okkur til Angkor Wat ad horfa a solarupprasina. Hversu god byrjun a afmaelisdeginum minum er thad?

Regnhlif sagði...

nokkkuð góð byrjun myndi ég segja:)

Nafnlaus sagði...

Ohhh ég fór einmitt í smá dagsferð til Salamanca í sumar og hitti spænskukennarann minn á Plaza Mayor fyrir algera tilviljun, fáránlegt! En ógó gaman! Líka gaman að koma þangað í góðu veðri því ég var auðvitað bara þar frostaveturinn mikla 2001-2002, í sumar var bara hiti og fínerí:)!