þriðjudagur, febrúar 05, 2008

732.færsla. fátækur námsmaður talar frá Þjóðó

Ég held ég neyðist til að að bæta við merkimiða: moggablogg

Var að lesa á mbl.is um spænskan bæjarstjóra sem vill borga krökkum fyrir að læra á bókasafninu, til þess að reyna að hvetja þau til að sinna náminu.

Þetta finnst mér stórgóð hugmynd... en myndi þá samt vilja að þetta gilti á öllum námsstigum:) Ég væri örugglega búin að skrifa eins og eina M.A.-ritgerð ef ég fengi borgað fyrir að vera á Þjóðó.

Þyrfti samt líklega að fá meira en eina evru á tímann (eins og spænsku unglingarnir eiga að fá ef bæjarstjórinn fær að ráða) til þess að ég vildi þetta. En samt... jafnvel ein evra á tímann væri betra en ekkert... ef maður væri í 5-6 tíma þá myndi það nægja til að kaupa sér hádegismat.

Held samt að borgunar-lærdómssvæðið þyrfti þá að vera með tölvur sem leyfðu ekki blogg, facebook, msn o.s.frv.

Eða bara að breyta námslánum í styrk! Það væri líka kúl. Og hvetjandi... af því að á flestum stöðum sem hafa svoleiðis fyrirkomulag þarf maður held ég að klára á réttum tíma og svona til að fá (fullan?) styrk. Held ég.

Engin ummæli: