þriðjudagur, febrúar 05, 2008

733.færsla. un euro

Ég var að ákveða að fara að safna mér evrum. Þ.e. að gefa sjálfri mér í þykjustunni 1 evru fyrir hvern klukkutíma sem ég eyði á bókasafninu eða uppi í skóla að læra. Svo ef ég vil get ég ákveðið að kaupa mér eitthvað fallegt fyrir evrurnar sem ég safnaði:) Ja, nema ég hafi þetta bara alvöru evrur sem ég get notað sem gjaldeyri ef ég skyldi nú fara til útlanda í sumar.

Markmiðið er að safna 40 evrum á viku.

(váts hvað ég mun þá eiga mikinn gjaldeyri í mæ:))

Í dag safna ég 7,5 evrum (Þjóðó frá 10-17:30*). Ætla sko alltaf að tilkynna evrusöfnun á blogginu... það er alltaf svo gott að aðrir geti skammað mann ef maður stendur sig ekki í stykkinu.

p.s. ég vil koma því á framfæri að ef einhver er að hugsa "hún ætti nú fyrst og fremst að læra meira og blogga minna" að ég er líka búin að vera dugleg að læra, aldrei þessu vant. Ef ég verð áköf í lærdómi þá verð ég líka áköf í bloggi. Oftast blogga ég minna þegar ég löt, nema náttúrulega þegar ég blogga bara um hvað ég er löt. Ég er auk þess rosalega fljót að skrifa þetta því ég er búin að æfa mig svo mikið í ýmsum vélritunarleikjum á netinu. Hehe.

*Veit að klukkan er ekki orðin 17:30, en ég ætla að vera til 17:30. Þá ætla ég að taka strætó heim til Ma og Pa því það er baunasúpa fyrir "hele familien"... jibbí:) Nú er hele "famelien" orðin hvorki meira né minna en 18 manns!

6 ummæli:

Regnhlif sagði...

Vá, ég skrifaði "mæ" í staðinn fyrir "maí". Sjitt.

asa sagði...

ó mæ

Nafnlaus sagði...

hehe mér fannst mæ'ið bara sniðugt. En ekki lengur, fyrst það var ekki gert viljandi ;) Bara fyndið núna

Fríða sagði...

ég las þetta mæ oft. Já, og svo hringdi ég í baunasúpuna og frétti að pabbi þinn hefði verið með nýjasta barnið í fanginu akkúrat þá. Ég fylgist með, jájá.

Haha, Nanna á afmæli tuttugasta og fimmta mæ hahaha

Regnhlif sagði...

ég vildi að við myndum bara hljóðrita... þá mætti maður skrifa mæ og svona:)

en mikið lítur mæ asnalega út:) hoho

Nafnlaus sagði...

Ég var mjög hrifin af mæ. Enda mjög hrifin af Halldóri Laxness. Nú ertu farin að líkjast honum Hlíf ..og ef hann bloggaði hefði enginn sagt honum að skrifa minna og lesa meira. Right?