743.færsla. Undankeppnin2
Verð að blogga um keppnina aftur.
Ég hafði rétt fyrir mér um hvaða þrjú lög yrðu í efstu sætunum en röðin var kolvitlaus:)
Merzedes ClubMig grunar að Merzedes Club hafi hafnað í öðru sæti því flutningurinn var alls ekki nógu góður. Samt sem áður fannst mér atriðið þeirra bara SVO MIKIL snilld að mér fannst það eiginlega bæta fyrir slappan söng. Flutninginn hefði samt þurft að bæta. En mér finnst þetta bara svo fyndið. Elska þetta atriði. Og lagið er mjög gott. Samt er kannski ágætt að þetta fari ekki út. Þau hefðu sjálfsagt reynt að ýkja þetta og ýkja, þangað til þetta væri komið út í einhverja vitleysu. En samt.
Ofurjúrólagið Ok. Lagið vann. Þau mega eiga það að þetta var vel gert og flott hjá þeim. Lagið er bara of júróvisjónlegt en samt er svolítið skemmtilegur taktur í þessu. Í síðustu færslu sagðist ég ætla að reyna að líta fram hjá því að ég fíli ekki flytjendurna... en það er ekki hægt: ÞAU ERU BEYGLUR! Þau voru að drepast úr biturleika þegar Silvía Nótt vann og sögðu eitthvað mjög leiðinlegt og hallærislegt við það tækifæri (tapsár) og svo þurfti Friðrik Ómar endilega að koma með eitthvað komment um "bylur (nema hann sagði held ég "glymur") hæst í tómri tunnu" í gær, sem ég get ekki skilið öðruvísi en sem skot á Merzedes Club... voru þau svona hræðilega öfundsjúk yfir því að vöðvabúntin skyldu fá meiri athygli en þau í fjölmiðlum? Þau unnu!! Vá, hvað ég þoli ekki svona móral. Nú ætla ég sem sagt að hætta að hafa samviskubit yfir því að finnast þau (sorrí að ég búi til eina persónu úr þeim tveimur) beyglur. Þau eru beyglur.
Svo er ég ekki nógu hrifin af því að lagið skuli heita "This is my life" á ensku. Á meðan lagið var söng allan tíman í hausnum á mér "It's my life- it's now or never - I aint gonna live for ever" (ok. kann ekki alveg textann). Veit ekki alveg hvort það er bara titillinn eða hvort lögin eru líka lík.
Það má alveg taka júróvisjón alvarlega. Ég tek júróvisjón alvarlega. En ekki OF alvarlega. Það má alveg gera grín um leið og hafa smá húmor fyrir sjálfum sér. Greyið Frógína á ekki eftir að taka því vel ef þau komast ekki upp úr undankeppninni úti.
Hvar ertu nú
Þetta lag verður bara flottara og flottara í hvert skipti:) Textinn er snilld "hvar er hásetinn" SJIPP HOJ SJIPP HOJ. Ég dey bara úr aðdáun minni á þessu lagi:) Hefði fundist svolítið töff ef við hefðum sent þetta lag út. Veit ekki hvort "Evrópa er tilbúin" fyrir þetta lag, en það hefði bara verið gaman. Við megum ekki vera of fókuseruð á að vinna eða eitthvað. Bara hafa gaman....
Um hin lögin: Mér fannst flutningurinn á öllum lögunum heppnast mjög vel og flestir stóðu sig mjög vel, nema mér fannst eitthvað skrítið í In my dreams. En að síðastnefnda laginu undanskildu voru lögin að mínu mati bara ekki nógu góð. Mig langar að segja ljóta hluti um sum lögin, eða allavega eitt, sem mér fannst viðbjóður, en þetta er lítið land og ég vil ekki særa tilfinningar fólksins sem að því stóð.
Allt í allt fannst mér samt keppnin mjög skemmtileg. Mér fannst upphafsatriðið líka mjög skemmtilegt.
En hér koma svakalegar Júróvisjón fréttir. Ég verð hvorki á landinu þegar Ísland keppir í undankeppnini né þegar úrslitakeppnin verður. Ég missi sem sagt af öllum mögulegum júrópartíum. Eini sénsinn er að einhver vilji hafa júrópartí kvöldið sem fyrri undankeppnin er, sem Ísland tekur ekki þátt í. Einhver?
(æ, það er ekki möguleiki núna að gera smærra letur. Mér sem fannst það svo skemmtilegt) Fyrir nokkrum dögum ruglaðist ég og merkti færslu númer 379, en færslan átti í raun að vera númer 739. Svona er talnablindan mín. Fattaði þetta ekki fyrr en í dag, þegar ég merkti færsluna 382 og fór að hugsa hvort ég væri virkilega ekki búin að skrifa fleiri færslur á tæpum fimm árum. Þá fattaði ég þetta. Er núna búin að laga þessi mistök aftur í tímann:)
7 ummæli:
Min versta jurovision martrod raettist I gaer! Thetta komment hja FO er einmitt astaedan fyrir thvi ad mig langar ad harreyta mig i hvert skipti sem eg heyri minnst a thessar beyglur. Oh, tholi ekki RO og FO!!!
Ok, í alvöru talað átti einhver vön á einhverju öðru, það varð jú að gefa RÓ og Fó sárabætur fyrir Silly Night dæmið. Það var ekki hægt í fyrra, of stutt liðið, því fínt að senda einvhern neutral eins og Eika, og nottla bara snilld að þau voru í sama liði í ár og því hægt að bæta þeim þetta báðum upp í einu. Skítalykt....folkens.
En amk gott að helv... Gillz fékk ekki miðann, þá hefði ég orðið að halda með Írska kjúklingnum....
issss... sárabætur? Eins og t.d. að Selma HEFÐI átt að fá sárabætur og komast upp úr riðlinum hérna í den, fyrir helvítis sænsku beygluna sem stal sigrinum þegar All Out of Luck fór út?! Ónei! Það eru engar sárabætur í jóróvisjon (ÞETTER DAUÐANS ALVARA!), og djöfull ergir það mig að helvítis frethólkurinn hann FÓ hafi sagt þetta - hann er svo uppfullur af sjálfum sér og með mikilmennskubrjálæði á háu stigi!
Annars líst mér ágætlega á lagið sem slíkt, ekta júrótrash-popp fílíngur í því...
en Dr. Spock áttu klárlega kvöldið!
hahaha... "síðast þegar ég hitti SERBANN í rósagarðinum, hvað varð um hann..." hahahah!! Og rafstýrði gúmmíhanskinn? Og motturnar? Og guli spandex-búningurinn? Hvernig gátu íslendingar sleppt tækifærinu að senda út slíkan unað? Totally beyond me!
Sammála Erlu með júrótrashpopp fílínginn... sem slíkt er það fínt. Held ég.
Sammála Auði með hárreytinguna.
Já, spurning Þóra... svindl? En Þóra, það er ekki annað hægt en að elska Gilz í þessu lagi hahaha. Einbeitingin við að spila með einum putta... og svo höfuðhnykkirnir. Sjetturinn þetta er svo fyndið.
En já algjörlega sammála með Dr. Spock. Unaður.
Uss... að fara til útlanda þegar júró er! Hvert ertu að fara?
ég er bara að fara í sólarfjölskylduferð til spánar
Ertu í svona sólarfjölskyldu?
Skrifa ummæli