745. færsla af böngsum og hátíðum
Ég ætlaði nú ekki að láta síðustu færslu standa svona lengi... hún átti reyndar ekki að vera eins þunglyndisleg og fólki fannst... en ég þakka kommentin... ýmislegt sem er gott að hafa í huga og minna sjálfan sig á þegar allt virðist ómögulegt.
Í gær var árshátíð. Hún var skemmtó, eins og allar hinar (fjórar) árshátíðir Mímis sem ég hef mætt á. Fyrst var fyrirpartý... svo rútan... sem var allt of róleg. Síðan hvenær er ekki sungið og öskrað í rútunni? Held við höfum bara ekki verið nógu drukkin. Svo var matur og dagskrá, sem hvort tveggja var very nice. Svo var almenn drykkja og ólæti. Það fól meðal annars í sér hórudrykkjuleik, nördahugtaka-banani-banani-pera-pera-leikinn og það er kannski rétt að minna á að það voru kennarar viðstaddir. Svo fékk ég mikinn áhuga á hópdönsum. Byrjaði á því að Saturday night var sett á fóninn og þá varð maður auðvitað að dansa dansinn, þrátt fyrir að ég hafi ruglað honum svívirðilega saman við Macarena dansinn. Svo kom Macarena.... og svooo tómatsósulagið! Ég kunni reyndar aldrei þann dans, en það stoppaði mig ekki í því að dansa hann. Mjög fyndið, ein stelpan í íslenskunni, Álfdís, fór að tala um spænsk lög sem voru vinsæl 2002, af því að hún var líka á Spáni þá. Ég sver það, öll lögin sem hún nefndi voru á Spánardisknum sem Sigga P bjó til. Haha. Toma vitamina, cuando te enamores.... Ave Maria, cuando seras mia... vino tinto... yndislegar minningar.
Annars er það helst í fréttum að mér var treyst fyrir því ábyrgðarfulla hlutverki að passa litla bangsa systurson, í heila tvo klukkutíma á meðan móðirin skrapp í klippingu. Held þetta hafi verið fyrsta skiptið sem hann fór í pössun. Og þetta gekk mj. vel. Ég er ofurbarnapía. Rosalega góð í því. Ýkt. Hann er líka bara sætur og góður eins og sjá má af myndinni (sem ég tók sjálf, kannski aaaðeins of nálægt)
4 ummæli:
jiiiiiiiii hvað þið eruð sæt. Greinilega ákaflega góð gen þarna á ferð ;)
Hann er að reyna að líta út eins og honum sé alveg sama þótt þú sért að passa hann. En það þýðir ekkert, við vitum það öll hvað hann er hrifinn af uppáhalds bestu barnapíunni sinni.
ohh vá! öfund ..díses, það læddist að mér sá kvíði að kannski biðji systir mín mig ekkert að passa. Ever. Ég verð svikin af tækifærinu til að þekkja nýjasta fjölskyldumeðliminn. Illska.
Haha. Systir þín á örugglega eftir að leyfa þér að passa... svo rosalega þægilegt að hafa svona systur sem geta passað, skilst mér.
Skrifa ummæli