844.færsla.
ég er svo ógeðslega þreytt í dag. Langar í kók. Veit ekki hvort ég á að fara í ræktina sökum slappleika. óyfirstíganlega erfið ákvörðun.
Ég held ég hafi kennt tvöfaldan tíma í gær með opna buxnaklauf á pilsinu mínu.
Reif líka gat á pilsið. Flækti það horninu á hillunni undir töflunni svo það rifnaði þegar ég gekk framhjá.
Syfjuð.
Skemmtilegur hádegismatur í hámu.
2 ummæli:
mjög skemmtilegt hádegishlé áðan :)
ég tek áskoruninni, en áskil mér frest þar til í janúar 2012 (sökum ungs aldurs míns)
reyndar eru þarna bækur eins og ég sagði áðan, sem mér finnst alveg að megi bíða fram á sjötugsaldurinn ...
hanna rún
jess...
En það er svo mikið afrek að lesa bækur sem mann langar ekkert svo mikið að lesa.
Skrifa ummæli