mánudagur, október 27, 2008

846.færsla.slöpp

Ég er bara þræl drullu djöfulsins prumpu slöpp.

Fúlt

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Tvær þessara lýsinga benda til þess að meltingin sé í ólagi?
Ella

Regnhlif sagði...

:) nei reyndar ekki. Benda til fúllyndis:)

Nafnlaus sagði...

Litla grey...reyndu að hvíla þig vel! Já, og ég er til í bókaáskorunina. Skammast mín gegt að hafa bara lesið nokkrar á listanum. Er ekki tilvalið fyrir þig að leggjast t.d. í Hringadróttinssögu í veikindunum? Annars hlýt ég að geta strikað hana út af listanum, búandi með sérlegum áhugamanni um hana...farin að kunna hana utan að án þess að hafa lesið hana :) Knús, la gorda (en minnkandi).

Regnhlif sagði...

Oh skrifaði langt komment en það gufaði upp.

Ég furða mig á því að maðurinn þinn skuli ekki hafa látið þig lesa Hringadróttingssögu enn. Er hún ekki til á hljóðbók? Svo finnst mér að maður ætti að fá hálft stig fyrir hobbitann.

Nafnlaus sagði...

ætti "þræl drullu djöfulsins prumpu slöpp" ekki að vera í einu orði?
"Þrældrulludjöfulsinsprumpuslöpp"?

Regnhlif sagði...

þræl-, drullu- og líklega prumpu- eru a.m.k. forliðir, en djöfulsins truflaði mig eitthvað. Ætli það sé ekki bara eins konar innskeyti hér? Jú, þetta hefði allt átt að vera í einu orði.