mánudagur, mars 26, 2007

615.færsla. skóli-drjóli

Jæja. Nú fer maður að sjá fyrir endan á önn DAUÐANS. Aldrei, ég endurtek, ALDREI hef ég upplifað annað eins:) Það er búið að vera svooo mikið að gera hjá mér. En mér tókst, á undraverðan hátt, að skila stórri ritgerð í dag, aðeins einum degi eftir framlengdan frest.

Þá held ég að ég eigi bara eftir á þessari önn:
1 fyrirlestur (á fimmtudag)
1 verkefni (þriðjudag í næstu viku)
1-2 próf (maí)*
1 dagbók=5 þriggja bls. ritgerðir (lok apríl)
0-1 ritgerð* (maí)

og náttúrlega aðstoðarkennslan:
3 (sinnum ca. 40) verkefni (eitt á viku)

*(Ég er sem sagt ekki búin að ákveða hvort ég skrifi ritgerð eða taki próf sem lokaverkefni í þessu fagi. Ég var ákafur stuðningsmaður þess að próf yrði valið fram yfir ritgerð, en lokaniðurstaðan varð að hver og einn mætti velja, og nú hallast ég sífellt meir að ritgerðinni)

Þetta er nú bara nokkuð viðráðanlegt. Ég gæti lifað þetta af.

Svo þegar þetta er allt búið, á enda runnið, ætla ég að leggjast inn á Reykjalund.
Amen.

Engin ummæli: