697.færsla.

Ég vil benda á það að ég hljóðritaði hvert orð eins og það væri borið fram stakt. Ég pældi ekki í því hvort hljóð í bakstöðu áherslulausra orða falli brott eða renni saman við næsta orð. Sum önghljóð í enda orða hefðu líka pottþétt átt að afraddast, en ég nennti ekki heldur að pæla í því.
Svörtu ferningarnir þýða ekki neitt, þeir eru bara þar sem ég gerði villur:)
Einar segir að þetta sé sönnun fyrir því að ég sé meira nörd en hann (við rífumst stundum um það) en ég er ekki sammála.
50 ummæli:
Mér finnst bara svo gaman að hljóðrita!
Mér finnst mjög gaman að heyra að þið rífist um það hvort er meira nörd. Við komumst að því að ég hef ALLTAF vinninginn um daginn.
hallo. þetta er pínu krútt nördalegt. krúttin ykkar.
p.s krúttttt
hallo. getum við ekki farið að smala saman í hitting áður en það verður of seint. gmg .. seriously. i mean .. i mean..
no, common.. seriously .. common. .. no you.. no you are so cute.. no you, you!
djók. en hittingur vei meira þannig jájája
Haha :) það eru örugglega soldið fyndin rifrildi. Mér fannst hljóðritaða færslan ekki leiðinleg. :)
hahahaha þú ert soldið nörd! en ég er fáfróð því ég kann ekki að hljóðrita...hehe gleymdi því um leið og ég var búin í prófinu :)
Ég fann villu! eða segirðu nokkuð "hljóðríta"? Hah! En þetta er skemmtileg færsla.
[mɪkɪΘ ouskaplεɣa εːr isːlεnska nu anːas ljɔuht maul̥!]
(:-))
Sko við rífumst um hvor sé minna nörd....
Hvað meinarðu Heimir, er sögnin ekki "ríta-reit-ritum-ritið":) Híhí. Jú, þetta er sannarlega vitla:)Takk.
Svei mér þá ég held bara að ég hafi getað lesið þetta næstum allt!
Ætli sé ekki svolítið erfitt að dæma í (ekki)nördakeppni?
neinei, ég er mjög góður dómari í því:)
Í hvernig röð koma eiginlega þessi komment hér?
En það sem ég vildi sagt hafa er að þetta er með skemmtilegri færslum sem ég hef lengi lesið. (Þetta segi ég stundum, með löngu billibili þó).
Þetta er eins og að lesa vesturjósku. Það er vita vonlaust að ætla að nota einhverja dönskukunnáttu á hana, maður verður að lesa upphátt það sem stendur og þá fattar maður það. Og svo finnst manni í leiðinni að maður hljómi eins og teingdó fyrrverandi og heitin, blessuð sé minning þeirra.
:)
En hvað er billibil? :)
Geta allir séð táknin hans Heimis, eða þarf maður að vera með svona tákn í tölvunni sinni til að geta það?
En Ása: Hvað meinarðu með "áður en það verður of seint"? Þetta hljómar eins og við séum dauðvona eða að flytja af landi brott eða....
billibil!!! hahahah
Ég get séð tákn, veit ekkert hvort það eru réttu táknin, en það allavega koma ekki spurningamerki eins og t.d. ef einhver er að skrifa á japönsku eða kínversku.
Já, og ef ykkur vantar áreiðanlega mælistiku á nördisma, takið þá prófið sem ég var einhverntíma með á síðunni minni.... uggnablik, ætla að finna það...
Jú, hér er það: http://www.nerdtests.com/ft_nq.php
(ástæðan fyrir því að ég er að leggja á mig að finna þetta til fyrir ykkur er náttúrulega sú að ef fólk vill ekki viðurkenna eigin nördahátt, þá fer það að sjálfsögðu ekki að leita sjálfkrafa að svona prófi).
Ég er tortyggin á að þetta séu réttu táknin sem koma fram hjá mér því að hann er með haug af ferningum sem þú hefur ekki??
hehe áður en það verður of seint og við verðum með börn og hús og 3 vinnur og/ eða allir búa í sitthvoru landinu.
ég renndi nú bara yfir þetta og leitaði ekki sérstaklega að villum. Það er samt spurning hvort ykkar er meira nörd, ég þarf að melta það með mér.
P.s. mig hefur líka lengi langað að hljóðrita færslu á mitt blogg, en þetta tekur bara óratíma, bæði að skrifa og líka stundum að lesa ;)
Ég tók nördaprófið þitt Fríða, og ég var bara frekar lítið nörd.
Það eiga engir ferningar að vera hjá Heimi, nema þú kallir tvípunkt eða doppu ferning.
Ég er nú frekar fljót að hljóðrita... á eiginlega betur við mig en venjuleg stafsetning, enda hef ég ágætis heyrn en ekkert sjónminni. Hins vegar er ég frekar lengi að lesa hljóðritun.
líka áður en það verður of seint, þ.e. ég missi þolinmæðina. þá er voðin vís ,. hljóðritun er töff. mátt hljóðrita mig við tækifæri.
p.s. hefuru einhverntíma fengið svona mörg komment?
Það er ekkert nóg að þú takir þetta próf, Einar verður að gera það líka
Ég sé táknin
Það eru t.d. ferhyrningar í staðinn fyrir þín skýtnu "g"
Kúl færsla :)
Svo má auðvitað alltaf nota hljóðritilinn góða eftir 1.p.et. ef maður vill slá um sig með IPA táknum á blogginu:
http://www.knowledge.is/hljodritill.aspx
Það var sem sagt ég sem var 1.p.et. Átti sko ekki að vera nafnlaust.
Mér finnst þetta gífurlega spennandi. Hvort ykkar er meira nörd meina ég. Mér líður eins og ég hafi eignast nýja bók, ég hlakka svo til að velta mér upp úr þessu. Ég velti þessu nú aðeins fyrir mér í sumar. Eða eiginlega meira hvað við værum öll miklir nördar. Eða sko Oddný vinkona sagði alltaf að við værum svo miklir nördar þegar ég talaði um vinnuna. Hmmm.
Annars verð ég að segja að saman eru þið skötuhjú mjög nördaleg. Var oft að springa úr hlátri þegar þið voruð að þræta í vinnunni um íslensku. Kunni bara ekki við að skellihlægja þegar þið vorum ýkt mikið að ræða. Þið erum hins vegar óendanlega krúttlegir nördar.Veit ekkert hvort þið eruð nördar í sitthvoru lagi. Þarf að velta því meira fyrir mér.
Núna ert þú kannski ýkt móðguð og vilt fá Iversen til baka strax eða hendir eggjum í bloggið mitt.
Ja, ekki átti ég vona þessum viðtökum :) hehe. Kommentakerfið alveg að springa bara, þó ég eigi reyndar slatta af kommentunum:)
Sko, ég held að það sé lýðum ljóst að við Einar erum bæði mikil nörd, saman og í sundur. Auðvitað eykst svo nördaskapurinn við það að við sameinumst... ég meina vó, skiluru.
En það má ekki gleyma því að ég er og verð ýkt mega töff, þó ég sé nörd. Hlíf töff.
eitt komment í viðbót og þá eru þau orðin þrjátíu. Hehe. Nú eru þau orðin 30.
já.. en þu svaraðir ekki spurningunni.. hefuru fengið svona mörg komment? EVER?? svaraðu áður en það verður of seint.
og ps.. koddu í feiklimi á morgun .plz
ps... hvernig hlljóðritar maður feiklimi. og ps.
hahahaha. ok. best að svara áður en það verður of seint. Svarið er: Ég veit það ekki! Öll eldri komment hurfu þegar ég skipti um kommentakerfi (mikil sorg) en ég fékk einhvern tíman minnir mig eitthvað rúmlega 20 komment. Ég veit ekki hvort ég hef nokkurn tíman fengið yfir 30.
Feiklimi á morgun. Ég verð þá að skanna feiklimi inn, en það er nokkurnveginn svona [fei:klImI].Einfallt orð.
Hljóðritillinn er athyglisverður en mér sýnist hann hljóðrita langa samhljóða með því að tvöfalda þá, en það líst mér ekki á (eða hvað? líst mér á það?). Ég sé að það er eitthvað mismunandi eftir tölvum hvort þessi IPA-tákn sem ég notaði uppi birtast rétt, auk þess sem ég hef misritað 'ó' með óþarflega opnu o-hljóði, og biðst velvirðingar á því.
(Hver sigrar nú?)
Þetta nördapróf fór betur en ég átti von á.
Ég fékk nördatöluna 17 og umsögnina NOT NERD. Haha. Hafiði það .
Nú vil ég að allir segi hvað þeir fengu:)
ömurlegt að missa út kommentakerfið
ömurlegt að missa út kommentakerfið
þ.e. þegar maður glataði öllu sem kommentað hefur verið. það er ömó.
p.s. hljóðritillinn þinn er sniðugur, Anton.
Ég fékk umsögnina 'svolítið nörd' en talan var rétt undir 50. Ég kenni spurningunni um telnet/ssh um þessa mína falleinkunn.
Hér er ég! Best að bæta á kommentafjöldann. Ég er búin að vera í sjálfskipuðu internetsvelti svo ég sá ekki færsluna um SNILLDARbókina Klukkuþjófinn klóka.
Og jú, Roy Rogers eða Roj Roggers eins og pabbi kallaði hann var í miklu uppáhaldi hjá sögupersónunum. Það var vegna þess að pabbi hélt agalega mikið upp á kúrekann frækna. Hann er einmitt að fara að gera útvarpsþátt um hann fyrir RÚV :)
Ég er líka svolítið nörd, 52% eru meiri nörd en ég, 46% minni nörd.
Hlíf, þú ert sko ekki nörd! Ég fékk nördatöluna 31, not nerd, but definitely not hip! Ég er samt viss um að ef þetta væri ekki aðallega vísinda/tölvunörda próf þá mundum við báðar fá miklu hærra skor :)
Jess, að ég skyldi ekki fara með fleipur, Salka.
Já, þetta nördapróf er meingallað því það prófar aðallega tölvunördaskap. Ef það myndi prófa málfræðinördaskap....
Eh, nördatalan mín er 6, "definitely not nerdy, you are probably cool"... Ég er kúl!
hvar tekur maður þetta nördapróf??
http://www.nerdtests.com/ft_nq.php
Þaddna.
Og ég segi ekkert hvað ég fékk á þessu prófi en tel mig þó afsakaða því ég man ennþá ótrúlega mikið úr lotukerfinu
Aha! Í sambandi við lengri samhljóða þá eru þeir tvöfaldaðir í hljóðritara í stað þess að merkja þá með lengd vegna þess að markmið forritsins hefur með atkvæðagerð að gera og góð rök eru fyrir því að tvöföld samhljóð skipti sér milli atkvæða ... og því sé í raun réttara að tala um tvöföld samhljóð en löng samhljóð. (sbr. Kristján Árnason 2005)
Gælunafnið Palli skiptist til dæmis í atkvæði Pal-li. Forritið var skrifað fyrir atkvæðarannsókn og þetta skipti verulegu máli þar.
Það breytir því þó ekki að forritið klúðrar því að hljóðrita sum orð, en það hefur yfirleitt með ranglega túlkuð orðhlutaskil að gera.
Skrifa ummæli