740.færsla. Jevla fasist!!
Ég er að flensast upp. Kæróinn smitaði mig.
Verst er að ég er að fara í leikhús í kvöld og vil síður vera hóstandi allan tímann. En ég held þetta sleppi nú, ég er ekki orðin svo slæm.
Er að fara að sjá Gael. Leikritið er aukaatriði, Gael er aðalatriði. Nei, svona án gríns þá er þetta bara fullkomið: Tilsammans er ein af uppáhalds bíómyndunum mínum og svo er Gael! Þetta endaði víst á því að ég varð að borga til að sjá hann. Raunasaga 1 og raunasaga 2 og raunasaga 3 og raunasaga 4
8 ummæli:
Tek það fram að ég er ekki geðveik (ekki mjög a.m.k.).
Hey, ég er líka að fara!!!
Í kvöld?
Hahahah fyndnar raunsögur og blogg... :) Jii, þú ert soldið fyndin stundum. Eða mjög og oft, eiginlega frekar
Er svo sammmála, ég hreinlega dýrka Tillsammans.
Er þinns þá ekki ógesslega öfundsjúkur út í minns sem var í partýi með Gael síðastliðinn laugardag?
sammmála með þremur m-um, það er mikil yfirlýsing
Hlíf hélt fyrirlestur á laugardaginn sem hún kallaði „Það var blotnað í rigningunni“. Ég stakk upp á öðrum en alveg jafn eðlilegum titli: Það var blotnað í leikhúsinu (með tilliti til þessara raunasagna).
Einar:... hahaha...
Díana: ég reyni að blokkera slæmar minningar. Kannast þess vegna ekkert við að hafa lesið um að þú hafir hitt hann.
Skrifa ummæli