734.færsla.
Engin evrusöfnun í dag og líkast til ekki heldur á morgun. Ég var nefninlega að komast að því að ég þarf að vera flutt út annað kvöld! Ég sem var rétt búin að dúlla mér að pakka eitthvað smá því ég átti að hafa allan mánuðinn.
Það er með ólíkindum hvað ég er með mikið dót þarna í litlu kjallaraholunni. 6fm herbergi virðist geyma um 5 tonn af bókum að minnsta kosti. Og á morgun þarf ég að keyra þetta út og suður um bæinn og troða í geymslur vina og vandamanna.
Einhvern daginn mun maður kannski komast í fast húsnæði ... þ.e.a.s ef maður mun einhvern tíman hafa efni á að kaupa á þessu uppsprengda verði.
4 ummæli:
Auðvitað kemstu einhvern tíma í fast húsnæði, verðið verður ekki alltaf uppsprengt. Eins gott að það lækki því að annars höfum við Hrund ekki efni á draumhúsinu. Í því þurfa að vera nógu mörg herbergi (fyrir barnahauginn), ég fæ risaherbergi til einkaafnota sem verður eingöngu nýtt sem bókaherbergi og Hrund fær bílskúr til umráða svo hún geta smíðað allan guðslangan daginn.
Þetta kostar bara nokkrar millur.
Annars geturðu alltaf flutt til Noregs eða Svíþjóðar og búið þar. Það eru mjög barnavæn lönd og hægt að kaupa dýrðlega krúttleg hús út á landi fyrir ekkert allt of mikinn pening.
Já, svo þarf líka að vera mikið geymslupláss í draumahúsinu, börn safna svo miklu drasli.
allamalla! er komid ad thvi?! a bara ad flytja inn til mannsins... til hamingju med thad! :) Verdur samt skrytid ad Hlibbid og Aubbid deili ekki sama thaki lengur... hver er annars nyji roomie-inn a Tjarnagotunni?
Ufff, eg kannast svo vid thetta... ad eiga ekki fast husnaedi sokkar, held ad eg se med mitt hafurtask heima a threm mismunandi stodum. My life as a vagabond :( en einhverndaginn skal draumahusid vera mitt... draumahusid A ARNARNESINU MED THYRLUPALLINUM OG SUNDLAUGINNI!
..og adur en malfraedisnillingurinn fer ad setja ut a ordanotkun eda ofauki samhljoda i faerslu minni, tha get eg afsakad mig med theirri stadreynd ad thetta var skrifad i einu hendingskasti og ekki ritskodad. Erfitt ad skrifa a svona utlenskar tolvur :0)
Hilsen
Haha, Erla, tók nú ekki eftir neinum villum... ég er alltaf að gera allskyns villur sjálf hvort sem er...
Jú ég er flutt út. Og það er svolítið skrítið. En líka skemmtilegt.
Skrifa ummæli